Þá átt þú mögulega rétt á bótum. Tort sérhæfir sig í slysa- og skaðabótum og tryggir að réttur þinn sé virtur að fullu — frá fyrsta degi til uppgjörs.
Slys geta haft líkamlegar, andlegar og fjárhagslegar afleiðingar. Í slíkum aðstæðum skiptir máli að málið sé unnið faglega frá upphafi.
Tort var ein af fyrstu lögmannsstofum á Íslandi til að sérhæfa sig í innheimtu slysabóta. Stofan er rekin af lögmönnum með allt að 40 ára reynslu og hefur frá stofnun árið 2007 annast hagsmunagæslu fyrir fjölda fólks vegna afleiðinga slysa.
Bótaréttur fer eftir því hvar og hvernig slysið verður. Hér eru helstu tegundir mála sem við sinnum.
Bótaréttur gagnvart tryggingafélögum er mjög ríkur — einnig fyrir ökumann sem er í órétti.
Meira um umferðarslys→Vinnuveitanda ber að slysatryggja starfsmenn sína. Tildrög slyssins hafa ekki áhrif á rétt þinn.
Meira um vinnuslys→Úr hvaða tryggingu þú átt rétt fer eftir því hvar og hvernig slysið verður. Sama gildir um rafhlaupahjól.
Meira um hjólreiðaslys→Þeir sem slasast við sjómannsstörf á sjó eiga víðtækari bótarétt en þeir sem slasast við störf í landi.
Meira um sjóslys→Samningsbundin trygging. Máli skiptir hvort þú hefur slysatryggt þig sérstaklega vegna frítíma.
Meira um frítímaslys→Við gætum einnig hagsmuna vegna íþróttaslysa, líkamsárása og læknamistaka / sjúklingatryggingar.
Meira um annað→Ferlið eftir slys getur verið yfirþyrmandi — en þú þarft ekki að standa í því einn. Við leiðum þig í gegnum hvert skref með skýrum hætti.
Byrjaðu málið þitt→Slysið er tilkynnt til viðeigandi tryggingafélags. Hafi það ekki verið gert aðstoðum við þig við að koma tilkynningunni á framfæri.
Við söfnum fyrstu gögnum málsins, þ.á m. vottorðum frá þeirri heilbrigðisstofnun sem þú leitaðir fyrst til. Því skiptir máli að leita læknis sem fyrst.
Gögnin eru send tryggingafélaginu, sem tekur afstöðu til þess hvort bótaskylda sé til staðar í málinu.
Sé bótaskylda samþykkt má óska eftir endurgreiðslu á útlögðum kostnaði — t.d. vegna lækninga, sjúkraþjálfunar eða lyfja.
Gagnaöflun er sett í bið uns stöðugleika er náð. Oftast er miðað við um 10 mánuði frá slysdegi.
Þegar stöðugleika er náð er óskað eftir lokagögnum frá þeim meðferðaraðilum sem þú hefur leitað til vegna slyssins.
Heildarsamantekt gagna fer til matsmanna sem meta varanlegar afleiðingar slyssins. Matið tekur að jafnaði um 6 mánuði.
Við sendum bótakröfu byggða á niðurstöðu matsins. Náist ekki samkomulag höfða lögmenn Tort mál til að tryggja rétt þinn.
Bætur skiptast í nokkra þætti sem metnir eru sérstaklega eftir atvikum hvers máls. Hvaða bætur koma til greiðslu fer eftir því hvaða tryggingar eiga við og hver ber ábyrgð á tjóninu.
Í flestum tilfellum þarf tjónþoli ekki að leggja út kostnað — hvorki vegna gagnaöflunar né lögmannsaðstoðar. Þóknun Tort er dregin af bótunum í lok máls og greiðist í mörgum tilfellum að mestu af tryggingafélaginu, t.d. í umferðarslysum. Fáist engar bætur ber tjónþoli í flestum tilfellum engan kostnað. Það kostar ekkert að hafa samband.
Pantaðu frítt og óskuldbindandi viðtal. Við förum yfir réttarstöðu þína og hvort þú eigir rétt á bótum.
Ármúli 13, 2. hæð
108 Reykjavík, Ísland
Kt. 550307-0300
Mán — Fös
09:00 – 16:00
lokað 12:00 – 13:00
Fylltu út og við höfum samband.
Óskuldbindandi · Trúnaður · Engin fyrirframgreiðsla